Kjúklingur með tómötum og lauk

3 msk ólífuolía
1 kjúklingur, meðalstór, skipt í 8-10 bita
2 laukar, helmingaðir og síðan skornir í þunnar sneiðar
1 tsk kummin, steytt
1/2 tsk allrahanda, steytt
1 dós niðursoðnir tómatar, saxaðir
1 tsk hunang
2 tsk timjan
200 ml kjúklingasoð eða vatn
1 msk hvítvínsedik
nýmalaður pipar
salt
1 sítróna

Ofninn hitaður í 180 gráður. Olían hituð á þykkbotna pönnu og
kjúklingabitarnir brúnaðir á báðum hliðum. Teknir upp og settir í eldfast
fat. Laukurinn settur á pönnuna og látinn krauma við fremur vægan hita í um
10 mínútur. Þá er kummini og allrahanda hrært saman við og síðan innihaldi
tómatdósarinnar, hunangi, timjani, soði eða vatni og ediki. Hitinn hækkaður
og látið sjóða rösklega niður í nokkrar mínútur. Kryddað með pipar og salti
og hellt yfir kjúklinginn. Sett í ofninn og bakað í 45-50 mínútur. Þá er
safinn úr sítrónunni kreistur yfir, látið standa í hálfopnum ofninum í
nokkrar mínútur, og síðan borið fram.