Kjúklingur með mandarínukúskús
1 kjúklingur
2-3 hvítlauksgeirar
safi úr 1 sítrónu
nýmalaður pipar
salt
2 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður
1 dós tómatar
200 ml hvítvín eða vatn
1/4 tsk kanell
chilipipar á hnífsoddi
klípa af saffranþráðum (má sleppa)
4-6 mandarínur
12 svartar ólífur
250 g kúskús
1 msk smjör (eða ólífuolía)
2-3 msk steinselja, söxuð (má sleppa)
Kjúklingurinn skorinn í 8 hluta og kryddaður
með hvítlauk, sítrónusafa,
pipar og salti. Olían hituð vel á pönnu eða í víðum potti og
kjúklingabitarnir brúnaðir á báðum hliðum við háan hita. Laukurinn settur á
pönnuna þegar búið er að snúa þeim. Tómatarnir maukaðir í matvinnsluvél
(einnig má nota tómatmauk úr dós eða jafnvel tómatsafa) og hellt yfir ásamt
hvítvíni eða vatni. Kryddað með kanel, saffrani, chilipipar, meiri pipar og
salti og þegar suðan kemur upp er hitinn lækkaður, lok lagt yfir og látið
malla í hálftíma við hægan hita. Mandarínurnar afhýddar, skipt í hólf
(gjarna 2-3 höfð föst saman) og settar út í ásamt ólífum. Látið malla í 10
mínútur í viðbót. Kúskúsið sett í skál og meirihlutanum af vökvanum af
kjúklingnum hellt yfir. Hrært, lok lagt yfir og látið standa í 3-4 mínútur.
Smjöri eða olíu hrært saman við og látið standa í 2-3 mínútur í viðbót. Þá
er kjúklingabitunum raðað ofan á, sósunni hellt yfir, skreytt með steinselju
og borið fram.