Kjúklingur tropical með lychée og beikoni

1 stk. kjúklingur, heill

Fylling:
100 g cashewhnetur
200 g beikon
100 g þurrkaðir ananas- og papayateningar, sykraðir
20 stk lychée
salt og pipar

Ristið cashewhnetur á pönnu og saltið. Skeriið beikon í smáa bita og steikið á pönnu. Afhýðið og steinhreinsið lychée og bætið á pönnuna ásamt cashewhnetunum, ananas- og papayateningum. Kryddið með salti og pipar. Setjið fyllinguna í kjúklinginn. Skerið göt við leggina og losið skinnið varlega frá bringunum. Setjið fyllinguna líka undir skinnið. Kryddið kjúklinginn með salti og pipar og eldið í ofni við 160°C í 1 klst.