Kjúklingur með sveppum

½ kg ferskir niðurskornir sveppir

3 msk. smjör

6 kjúklingabringur, án skinns, skornar í helminga

3 msk. hvítvínsedik

1 – ½ bolli þeyttur rjómi

3 msk. kapers, vökvi sigtaður frá

¼ tsk. svartur pipar

gufusoðið ferskt grænmeti  (Ekki nauðsynlegt)

Steikið sveppina í einni matskeið af heitu smjöri á frekar háum hita þar til sveppirnir eru mjúkir. Fjarlægið þá af pönnunni og lækkið hitann niður í miðlungshita. Setjið 2 msk. af smjöri og kjúklinginn á pönnuna. Eldið kjúklinginn án þess að hafa lokið á í 8-12 mínútur eða þar til kjötið er ekki lengur bleikt. Fjarlægið kjúklinginn af pönnunni og haldið honum heitum. Takið pönnuna af heitri hellunni, hellið vínediki á hana og hrærið til að losa brúnaða bita frá botni pönnunnar. Setjið pönnuna aftur á heita helluna og hrærið rjóma, kapers og pipar saman við þar til blandan fer að sjóða, látið sjóða í 2-3 mínútur eða þar til blandan hefur þykknað. Bætið sveppunum við blönduna og hitið þá. Skerið kjúklinginn í smærri bita og hellið heitri sósunni yfir þá. Berið fram með gufusoðnu grænmeti, ef vilji er fyrir hendi.