Kjúklingur með pestó, rjómaosti, grænum ólívum, hrísgrjónum og salati

Hlutaði heilan kjúkling niður í fjóra bita og var með aukalega nokkra leggi. Hellti 1-2 msk af jómfrúarolíu í botninn á eldföstu móti og dreifði svo heilum gróft söxuðum hvítlauk í fatið. Lagði kjúklingabitana þar ofan á. Setti 100-130 gr af hreinum rjómaosti í skál og blandaði saman við 3/4 krukku af pestó. Þetta var hrært vel saman og saltað aðeins og piprað. Þessari blöndu var svo makað á kjúklinginn. Restinni af pestóostinum var svo dreift með í fatið. Einni lítilli krukku af góðum ólívum var svo dreift á milli. Bakað í forhituðum ofni, 200 gráður, í 35-45 mínútur eða þar til kjarnhiti nær 82 gráðum í kjötmæli.

Þegar kjúklingurinn var tilbúin var honum raðað á fat og ferskri steinselju dreift yfir. Sósan var einföld, vökvinn (rjómaosturinn, pestó, ólívur, hvítlaukur og olían) sem rann af kjúklingum við bökunina hellt í skál og borin fram með. Með matnum var borin fram soðin jasmín hrísgrjón. Ferskt salat með grænum laufum, vínberjum, konfekttómötum og papriku