Kjúklingur með kasjú-hnetum
4 kjúklingabringur
1-2 hvítlauksgeirar
lítill bútur engiferrót (2 sentímetrar)
1 stór laukur
1 rauð paprika
1 msk olía til steikingar
2 msk vorlaukur, saxaður
sósa
200 ml Hoi-Sin sósa
3 msk tamari sósa
3-4 msk appelsínumarmelaði
250 ml kjúklingasoð
Skerið kjúklingabringurnar í teninga og steikið á pönnu í um 15-20 mínútur.
Takið bringurnar af pönnunni. Steikið laukinn, kasjú-hneturnar, paprikuna,
hvítlaukinn og engiferrótina í smá stund. Setjið hráefnið í sósuna út á pönnuna
saman við grænmetið, hrærið saman og setjið loks bringurnar út í. Látið malla í
smá stund. Vorlauk er síðan stráð yfir í lokin. Gott að bera fram með
hrísgrjónum.