1 stór kjúklingur
1 laukur
1 rauðlaukur
1 hvítlaukur
1 blaðlaukur
5 gulrætur
Salt & pipar
kartöflur
Kjúklingurinn er settur í lokað fat eða ofnpott og kryddaður með salti og pipar.
Allur laukurinn er skorinn í sneiðar. Gulræturnar eru þvegnar og skornar í bita.
Kartöflurnar eru þvegnar og skornar í 2-4 bita. Allt sett í fatið með
kjúklingnum og bakað í 1 klukkutíma á 200°C.
Þegar kjúklingurinn er tilbúinn eru kartöflurnar veiddar upp úr,
saltaðar/kryddaðar og settar í skál,kjúklingurinn settur á fat og hitt, (laukur
og gulrætur) eru sett í mixer og blandað vel saman.
Öllu hellt í pott með u.þ.b. 250 ml af vatni , hitað upp og notað sem sósa á
kjúklinginn.
