Kjúklingur í kókosmjólk með karrí og banönum

Fyrir 4

4 kjúklingabringur

1 rauð paprika

1 laukur

2 teskeiðar sterk karrísósa (vindalo, hægt er að nota aðrar gerðir af karríi eða hreinlega chili pipar ,,paste” til að fá smá stuð í þennan rétt)

2 dl kókoshnetumjólk

2 bananar

50 gr möndluspænir

fersk kórianderblöð

matarolía

salt og pipar

Skerið paprikuna, laukinn og kjúklinginn í grófa teninga. Hitið olíu í stórri pönnu og mýkið varlega laukinn og paprikuna. Bætið kjúklingnum á pönnuna og brúnið aðeins. Bætið karrísósunni út í og blandið vel. Setjið kókoshnetumjólkina út í og látið malla í 10 mínútur eða þar til paprikan er soðin. Saltið og piprið eftir smekk.

Gott er að láta réttinn hvíla í pönnunni í nokkrar mínútur áður en hann er borinn fram. Þá tekur kjúklingurinn í sig safann og það kemur i veg fyrir að hann verði þurr. Ristið möndluspænina á þurri pönnu á meðan. Skerið að lokum bananana í sneiðar, bætið á pönnuna og hitið upp réttinn. Stráið möndluspónunum yfir ásamt

smátt söxuðu koríander. Berið fram með basmati hrísgrjónum.