Kjúklingur í karríi með
eplum og lauk
2-4 kjúklingabringur
1 msk. ólífuolía
2 msk. karrí
2 msk. rjómi
2 laukar, skornir
2 epli, flysjuð og skorin í báta
Miðið kjúklingabringur við eina á mann. Í stað ólífuolíu má nota kókosolíu, sem
er þá látin bráðna á pönnunni. Sumir nota kókosrjóma í stað rjómans.
Olían hituð á pönnu. Kjúklingur skorinn í bita, settur á pönnuna og velt þar til
hann er brúnaður báðum megin, salt og pipar sett yfir. Því næst er karríinu
hrært saman við 150 ml af heitu vatni og því er hellt yfir kjúklinginn. Lauknum
og eplunum er svo stráð yfir, lok sett á pönnuna og hitinn lækkaður og þessu
leyft að malla í 35 mínútur, oft er gott að bæta aðeins við af heitu vatni ef
þarf. Eftir 30 mín. er rjómanum bætt við og svo eldað í tíu mínútur í viðbót við
lágan hita. Berist fram með hrísgrjónum eða kúskús.Gott er að bæta rúsínum í
réttinn