Kjúklingur í fínu formi
4-6 gulrætur, skornar í bita
½ hvítkálshöfuð, rifið
Olía
1 tsk sykur
2-3 hvítlauksrif, pressuð
100 g ferskir sveppir
1 lítill kúrbítur
1 tsk sítrónupipar
2-4 msk sojasósa
1 dl matreiðslurjómi eða kaffirjómi
1 stór kjúklingur, skorinn í átta bita
1 msk arabískt kjúklinga krydd frá Pottagöldrum
1 tsk salt
Skerið gulræturnar í bita og rífið hvítkálið á rifjárni. Hitið olíuna á djúpri
pönnu og léttsteikið gulræturnar í nokkrar mínútur. Bætið hvítkálinu á pönnuna
og látið krauma í nokkrar mínútur. Stráið sykrinum yfir og hrærið á meðan
gulræturnar og hvítkálið brúnast örlítið. Bætið hvítlauknum á pönnuna, skerið
sveppina og kúrbítinn í sneiðar og bætið út í. Kryddið með sítrónupipar og
sojasósu og hellið rjómanum yfir grænmetið. Setjið grænmetisblönduna í smurt,
eldfast form. Kryddið kjúklingabitana vel með kryddinu og snöggsteikið í olíu á
pönnu. Leggið kjúklingabitana yfir grænmetið og setjið lok eða álfilmu yfir
formið. Bakið við 200 gráður í 40-50 mínútur. Berið fram með hrísgrjónum.