Kjúklingur í chili og engifer

örlítið af canola-olíu

1 1/2 msk. hvítlaukur

2 msk. chili

200 g kjúklingabringa

50 g bambus

50 g grænar baunir

1 tsk. sykur

örlítið af fiskisósu

5 sneiðar rauð paprika

10 þunnar sneiðar af fersku engifer

225 ml vatn

Aðferð:

Skerið kjúkling niður í þunna bita. Myljið chili og hvítlauk niður. Skerið papriku og engifer í langar mjóar ræmur. Hitið olíu á pönnu. Snöggsteikið hvítlauk og engifer í heitri olíunni. Bætið kjúklingi út í og snöggsteikið. Bætið vatni út í og eldið kjúkling upp úr því. Bætið fiskisósu, sykri, bambus og grænum baunum út í. Sjóðið allt saman þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Takið pönnu af hita og bætið engifer og papriku í. Þá er rétturinn tilbúinn.