Kjúklingur í barbecuesósu

4 kjúklingabringur / hægt að hafa kjúklingabita

Hálf krukka apríkósusulta

Hálf flaska honey mustard barbecuesósa

1/3 flaska sweet soja sósa

Um það bil ½ lítra af rjóma

Blandið sultunni, barbecuesósunni, sojasósunni og rjómanum saman í skál. Hrærið vel saman. Setjið því næst bringurnar í skálina og látið þær liggja í leginum í um það bil 2-3 tíma í kæli. (Því lengur sem þær liggja í leginum, því meira bragð.) Látið að lokum matinn í eldfast mót og setjið inn í heitan ofn. Gott er að elda þetta við 190°c- 200°c í tæplega klukkutíma.

Meðlæti

Hrísgrjón: T.d. einn bolli hrísgrjón, 1 grænmetisteningur og 5 dl vatn.

Öllu blandað saman í pott, suðan látin koma upp og þá hrært vel í. Eftir það lækka hitann og rétt láta krauma undir loki án þess að hræra í. Þegar allt vatn er um það bil að verða gufað upp eru grjónin tilbúin.

Kartöflur: Skerið kartöflur í skífur. Magn fer eftir smekk hvers og eins. Látið síðan í ofnskúffu og bleyta með matarolíu. Takið síðan nokkur hvítlauksrif og kremjið yfir kartöflurnar. Nauðsynlegt að blanda vel við kartöflurnar. Gott er að velta kartöflunum 2-3 þrisvar meðan á hitun stendur og gæta þess að ekki ofhitni og þorni þannig.

Með þessu öllu má svo gera gott ferskt salat og nota t.d. feta ost. Einnig allt það meðlæti sem fólki finnst henta í þennan rétt.

Verði ykkur að góðu.