Kjúklingur í ho sin sósu

800 gr kjúklingabringur
1 dós Blue Dragon ho sin sósa
1 dós Blue Dragon baby corn cobs
1 dós Blue Dragon bamboo shoot
250 gr Blue Dragon eggjanúðlur
500 gr skorið blandað grænmeti

Kjúklingurinn er brúnaður á pönnu og settur næst í ofn og bakaður í 170° heitum ofni í 25 mín. Á meðan er grænmetið tekið úr dósunum og skolað vel undir köldu vatni. Því næst er það brúnað létt á pönnu og ho sin sósunni bætt út í, svo eru núðlurnar soðnar eftir leiðbeiningum á pakkanum.