Kjúklingur ađ ítölskum hćtti (Fyrir fjóra)
Parmavafđar og fylltar kjúklingabringur međ mascapone, sítrónu og timjan.

4 kjúklingabringur
4 sneiđar ítölsk skinka (parma  eđa álíka)
1 dós mascarpone
timjan - 1 búnt
safi úr 1 sítrónu
börkur af 1 sítrónu
kjúklingasođ 1 1/2 - 2 dl
olía
hvítvín 1/2 - 1 dl
salt og pipar

Ostur, krydd og sítrónubörkur og safi hrćrt vel saman. Vasi skorinn í kjúklingabringurnar og fyllingin sett inn í og einni sneiđ af parmaskinku vafiđ utan um.
Smá mauki haldiđ til hliđar til ađ setja í sósuna í lokin.
Bringurnar eru steiktar á vel heitri pönnu upp úr olíunni báđum megin og kryddađ međ salti og pipar. Hvítvíni hellt yfir, hitinn lćkkađur og sođiđ í smástund.
Kjúklingasođinu síđan bćtt viđ. Sett í ofnfast fat og skellt inn í 200 gráđu heitan ofn og látiđ bakast í 8 mínútur. Ţá tekiđ út, bringurnar settar til hliđar og haldiđ heitum, en safanum er hellt aftur á pönnuna. Smá mascarpone-mauki bćtt út í og hrćrt vel. Sósunni hellt yfir bringurnar.
Boriđ fram međ salati úr klettasalati, skornum jarđaberjum og parmessanosti. Salatsósa er hrist saman úr jöfnum hluta af góđri ólífuolíu og balsamediki, e.t.v. međ smá stítrónusafa međ.