Kjúklingaspjót frá Hawaí
4 stk kjúklingabringur
Grillspjót
225 g ananas, niðursoðin
8 stk kirsuberjatómatar
1 msk grænmetisolía
1 stk stór laukur
½ stk græn paprika
½ stk rauð paprika
Kryddlögur
2 msk hrein jógúrt
1 tsk chilipipar
1 stk hvítlauksrif
1 msk kóriander, ferskt
1 tsk kóriander, þurrkað
1 tsk kumin (ekki kúmen)
1 tsk salt
safinn af niðursoðna ananasnum
Sósa
180 g hreint jógúrt
3 msk steinselja
pipar
Kryddlögur
1. Blandið saman í stórri skál kumin, kóríander (bæði fersku og þurrkuðu),
hvítlauk, chilipipar, salti, jógúrt og ananassafanum.
2. Skerið kjúklinginn í bita og leggið í kryddlöginn í a.m.k. klukkustund.
Grillspjót
1. Skerið paprikuna og laukinn í sneiðar og þræðið upp á spjót ásamt kjúklingi,
ananas og tómötum. Pennslið með olíu.
2. Grillið í 15-20 mín. (eða þar til kjúklingurinn er gegnsteiktur). Pennslið
spjótin með kryddleginum á meðan grillun stendur.
Sósa
Saxið steinselju, hrærið út í jógúrtina og kryddið með pipar. Berið sósuna fram
kalda.