Kjúklingasaltið hans Ragga

4 kjúklingabringur (steiktar á pönnu í ólífuolíu og kláraðar inn í ofni, kryddaðar með salti og pipar)
16 stk kokteiltómatar (skornir í tvennt)
8 stk grænn spergill (skrældur og soðinn í saltvatni í 3 mín, skorinn í tvennt eftir endilöngu)
1/2 cantalópumelóna (skorin í grófa bita)
16 stk grænar ólífur (skornar í tvennt)
ristaðar cashewhnetur (magn eftir smekk)
góð blanda af salati sem inniheldur klettasalat og magnið alveg eftir smekk

Öllu raðað fallega saman á disk og dressingin yfir eftir smekk.

VIP - dressing
150 g dijonsinnep
3 dl ólívuolía
50 g hunang (3 msk)
1/2 dl rauðvínsedik
safi úr hálfri sítrónu
2 tsk sesamolía
1 tsk fiskisósa, asísk "fish sauce" (má sleppa)
100 g pikklað engifer (eins og er notað með sushi)
3 msk af safanum frá engiferinu
1 tsk karrý
1 tsk kóríanderduft eða ferskt
3 msk sesamfræ

Öllu blandað saman með töfrasprota nema sesamfræunum og fersku kóríander, því er bara hrært saman við dressinguna eftir á. Smakkið til með salti og pipar.