Kjúklingasalat Gunnar Þórðar og Toby

·        2 kjúklingabringur, skinnlausar

·        olía til steikingar

·        2 msk. hunang

·        ½ bolli jómfrúarolía

·        2 msk. dijon sinnep

·        ½ bolli söxuð steinselja

·        1 tsk. salt

·        pipar eftir smekk

·        3 msk. sesamfræ

·        1 bolli furuhnetur

·        2 pokar klettasalat (ef fæst ekki, nota jöklasalat og fl.
     Í poka   og ferskt spínat)

Steikið eða grillið kjúklingabringu. Blandið saman hunangi, ólífuolíu, sinnepi, steinselju, pipar og salti og smakkið (mjög mikilvægt) Ristið sesamfræ (gleymdi því síðast) og furuhnetur (gleymdi ekki, geðveikt gott) á pönnu. Skerið kjúkl. Í litla bita og blandið saman við sósuna. Látið standa í a.m.k. 45 mín. Setjið kjúkl. og sósuna á salatið og blandið vel, strá ristuðum hnetum og sesamfr. yfir. Bera fram með snittubrauði og góðu víni ef maður vill. T.d. þurru hvítvíni.