Kjúklingasalat 1 (a´la Habbý)

Salatblanda
Tómata
Gúrkur
Paprika
Avokadó 
(vel þroskað...dálítið mjúkt)
Skera brauðost í litla bita
Pastaskrúfur
Léttrista furuhnetur á pönnu (enga olíu á pönnuna!)

Hlutföllin eru í því magni sem þið viljið...

Setja matarolíu og Herbamar út á salatið
(Herbamar er sjávarsalt með kryddjurtum, algjör snilld útá allan mat + það er miklu “hollara” en flest annað krydd, ekkert 3krydd, dregur bara fram náttúrulegt bragð matarins!!)

Til þess að gera gómsætan kvöldverð úr þessu salati...

Rífa niður tilbúinn kjúkling

Skera pepperoni stöng í litla bita (gott að mýkja það upp með því að léttsteikja það, bara ca.1mín.)

-ATH. BEST er að taka kjarnann úr gúrkunni, hann er ástæðan fyrir því að salatið verður blautt og klessulegt daginn eftir + það breytir engu um bragð, þetta er bara vatn (samkv. hinum nakta kokki)

- Það má sleppa einhverju grænmeti eða bæta við.......en það má alls ekki sleppa avokadóinu!!! Og furuhneturnar eru punkturinn yfir Iið!