Kjúklingarúllur með fetaosti
6 kjúklingabringur
70 gr fersk basilíka
3 tómatar
1/4 bolli af brauðraspi
2 dósir Kryddfeti í kryddolíu frá Mjólku
Salt og pipar
1 rauð paprika
Hvítlauksídýfa
2 rif hvítlaukur marinn
1 dós Sýrður rjómi 10% frá Mjólku
2 tsk. kryddolía af kryddfeta
Forritið ofn í 200°C
Skerið smátt ferska basilíku, tómata og papriku. Setjið í skál og blandið
fetaosti samanvið.
Kryddið eftir smekk með salti og pipar.
Skerið í kjúklingabringurnar þannig að þær opnist í miðju án þess að skera þær í
sundur. Berjið síðan bringurnar með buffhamri þar til þær eru mjög þunnar - best
er að hafa þær í poka. Opnið síðan bringurnar og setjið fetablönduna á milli,
lokið þeim og rúllið upp.
Veltið síðan kjúklingarúllunum upp úr brauðraspinu. Raðið kjúklingarúllunum í
áður hitað eldfast mót og bakið í 25 til 30 mínútur við 200°C.
Borið fram með fersku salati og bökuðum kartöflum með hvítlauksídýfu.