Kjúklingaréttur með sólþurrkuðum tómötum
3 kjúklingabringur (án húðar)
2 msk olía af sólþurrkuðum tómötum
kryddað með sítrónupipar og salti.
Kjúklingabringurnar eru steiktar í olíunni af sólþurrkuðu tómötunum. Settar í eldfast mót.
Eftirfarandi er einnig steikt á pönnu í olíunni af sólþurrkuðu tómötunum:
1 saxaður laukur
6-8 sneiddir sveppir
2 sneiddar gulrætur
4-6 sólþurrkaðir tómatar eða eftir smekk
1 stór teningur kjötkraftur
1 dós rjómaostur m/sólþurrkuðum tómötum
1/2 peli rjómi
timian (ferskt eða þurrkrydd)
Þetta er látið krauma aðeins og hellt yfir kjúklinginn og sett í ofn í ca. 30 mínútur við 200°C. Hafa álpappír yfir. Borið fram með góðu brauði og salati.