Kjúklinga- og hrísgrjónaréttur með brokkólí

5 dl frosið brokkólí

5 dl sjóðandi vatn

480 g frosnar, bein- og skinnlausar kjúklingabringur

2½ dl rifinn Cheddar ostur

¼ tsk McCormick hvítlauksduft

1 stk Uncle Ben´s Country Inn Broccoli au Gratin hrísgrjón í pakka

Matreiðsla

Hitið ofninn í 220°C. Setjið hrísgrjón og kryddblöndu í eldfast mót og hellið sjóðandi vatninu yfir; blandið vel saman. Setjið kjúklinginn í eldfasta mótið og stráið hvítlauksdufti yfir. Lokið með álpappír og bakið í 30 mínútur. Bætið þá brokkólí og osti saman við og bakið áfram undir álpappír í 8-10 mínútur