Kjúklingalundir í bankabyggi og quinoa með ferskum engifer, möndlukryddi, lime og karrý (fyrir fjóra)
800-1200 gr kjúklingalundir/bringur (4-6 meðalstórar bringur/lundir)
1 bolli bankabygg frá Móður náttúru (í brúnum bréfpokum)
1 bolli quinoa (fæst í Fræinu, Fjarðarkaupum)
1 ferna matreiðslurjómi eða 3/4 dós lífrænt kókosmjólk (kókosmjólkin fæst í
Fræinu)
2 lime
1 rauðlaukur eða slatti graslauk
5-10 cm ferskur engifer
Isio 4 olía eða önnur góð steikingarolía
Engiferkrydd frá Pottagöldrum
Safi úr einni lime
Brytjið á því að sjóða bankabyggið í um 30 mín (3 dl af vatni á móti 1 dl af byggi) og bætið quinoakorninu út í þegar 20 mín eru eftir og bætið við vatni samkvæmt leiðbeiningum. Kornin eiga ekki að vera fullsoðin. Á meðan þetta er að sjóða rífið börkinn utan af tveimur lime, skrælið engiferinn og saxið, ásamt lauknum í litla bita (einnig má rífa engiferinn). Hitið góða olíu á pönnu og ristið engiferinn, laukinn og allan börkinn. þangað til það fer að brúnast (tekur enga stund!). Setjið kjúklinginn út á pönnuna, veltið aðeins upp úr kryddinu og steikið á báðum hliðum þangað til þær eru orðnar hvítar. Setjið helminginn af rjómanum/kókosmjólkinni út í og látið sjóða í 3-5 mín. Þegar byggið og quinoa er búin að sjóða í 20 til 30 mín, hellið þá vatninu og skolið með köldu vanti. Setjið kornið út á pönnuna með kjúklingnum og aðeins meiri rjómanum/kókosmjólkinni. Kreistið safann úr annarri lime yfir og kryddið með engiferkryddinu, dukkah-möndlukryddinu og karry de luxe eftir tilfinningu. Setjið í eldfast mót, hellið afganginum af rjómanum/kókosmjólkinni yfir og stráið Dukkah-kryddinu aðeins yfir allt saman. Bakið í ofni í 15 mín á 180°C hita.
Njótið með góðu salati og glasi af hvítu eða rauðu. (Eftir verður eitt
barkalaust lime sem gott er að kreista safann úr, út í vatn daginn eftir á
fastandi maga. Gott fyrir meltinguna að byrja á sítrónu- eða lime vatni á
morgnanna)