Kjúklingalundir í Limesafa

2 pk kjúklingalundir
1/3 bolli olívuolía
Safi af 3 lime
4 hvítlauksrif, pressuð
3 msk ferskur, saxaður kóriander eða steinselja
1/2 tsk salt
1/2 tsk malaður pipar

Fletjið kjúklingalundirnar. Blandið saman ólívuolíu, limesafa, hvítlauk,kóriander, salti og pipar í skál. Hellið yfir kjúklinginn og leyfið að marínerast í 4-8 klst. Grillið í nokkrar mínútur á hvorri hlið.