Kjúklingalæri með ostrusoja og engifer á linsubaunum

8 kjúklingalæri
salt og pipar
1 1/2 dl ostrusojasósa
1 msk. engifer, smátt saxað
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk. edik
1 msk. hunang
400 g soðnar linsubaunir

Kryddið kjúklingalærin með salti og pipar og bakið í 180°C heitum ofni í 25 mín. Blandið saman ostrusojasósu, engifer, hvítlauk,ediki og hunangi í skál og skiptið í þrennt.

Penslið lærin með 1/3 af sósunni og bakið í 5 mín. í viðbót. Setjið linsubaunirnar í pott, blandið 1/3 af sósunni saman við og hitið. Berið kjúklinginn fram með linsubaununum og blönduðu salati og berið afganginn af sósunni fram með kjúklingnum.

Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson - uppskriftin er úr Gestgjafanum