Kjúklingakarrýréttur
Frábær pottréttur sem vert er að prófa. Við mælum með austurlenskri stemmningu í
næsta matarboð!
Hráefni:
2 kg bein- og skinnlausar kjúklingabringur, skornar í strimla
7½ dl kjúklingasoð
300 g frystar baunir
2½ dl eplamauk, ósætt
2½ dl jógúrt, hrein
1¼ dl kókosmjólk
1¼ dl sýrður rjómi
3 msk Canola olía
3 msk karrí
3 msk tómatkraftur
2 msk hveiti
2 msk engifer
1 tsk kúmen
3 stk hvítlauksrif, pressuð
2 stk stórir laukar, saxaðir
¼ tsk kanill
Matreiðsla
Hitið olíu í stórum potti við miðlungshita. Bætið lauk út á og brúnið hann létt
(í u.þ.b. 15 mín.). Bætið engiferi og hvítlauk út á og mýkið í 1 mín.; síðan
karrý, kúmeni og kanil og látið malla þar til fer að ilma (u.þ.b. 1 mín.).
Setjið hveiti, jógúrt og tómatkraft út á; þeytið þar til sósan er orðin jöfn og
látið malla í u.þ.b. 1 mínútu. Bætið við kjúklingasoði og eplamauki. Látið
sjóða. Lækkið hitann og látið malla þar til sósan hefur þykknað lítillega,
hrærið við og við, í u.þ.b. 30 mínútur. Setjið kjúkling og baunir út í sósuna.
Látið malla þar til kjúklingurinn er nær eldaður í gegn, eða í u.þ.b. 3 mínútur.
Bætið við sýrðum rjóma og kókosmjólk. Lækkið hitann niður í meðalhita. Hrærið
þar til kjúklingurinn hefur eldast í gegn og sósan þykknað nóg til að hylja
skeið, eða í u.þ.b. 3 mín. (látið ekki sjóða). Kryddið með salti og pipar.
Setjið í skál og skreytið með kóríandersprotum.
Framreiðsla
Berið fram með hrísgrjónum, mangómauki, banönum, mangó, kókos og hnetum.