Kjúklingabringur með furuhnetum og rósmaríni
4 kjúklingabringur, frekar litlar, beinlausar
2 msk furuhnetur
50 g smjör
2 tsk ferskt rósmarín, saxað smátt
nýmalaður pipar
salt
1 msk olía
Kjúklingabringurnar (sem mér finnst betra að
séu með hamnum, en það er ekki
nauðsynlegt) lagðar á bretti, flatur lófi lagður ofan á og djúpur vasi
skorinn í hliðina á hverri þeirra með beittum hníf. Furuhneturnar ristaðar á
þurri pönnu þar til þær eru rétt byrjaðar að taka lit en síðan hellt á disk
og þær látnar kólna. Smjörið sett í skál og rósmaríni, pipar og salti hrært
saman við og síðan furuhnetunum. Fjórðungur af smjörinu settur inn í hverja
bringu og þær kryddaðar að utan með pipar og salti. Olían hituð á pönnu og
bringurnar steiktar við meðalhita í 5-6 mínútur á hvorri hlið, eða þar til
þær eru rétt steiktar í gegn og smjörið hefur bráðnað. Settar á fat eða
diska og bornar fram, t.d. með grænu salati og kirsiberjatómötum í
balsamediksósu: