Kjúklingabringur með ferskjum og bláberjum
4 kjúklingabringur, beinlausar og hamflettar
1 tsk ítölsk kryddblanda, eða annað krydd sem ykkur líkar
nýmalaður pipar
salt
2-3 ferskjur eða nektarínur, ekki mjög mjúkar
2 msk ólífuolía
200 ml hvítvín eða vatn
1 tsk hunang, ef notað er vín
5-6 msk bláber
Kjúklingabringurnar kryddaðar með
kryddblöndunni, pipar og salti (nema
kryddblandan sé sölt). Ferskjurnar skornar í 8 báta hver og steinninn
fjarlægður. Olían hituð á fremur stórri pönnu og bringurnar settar á hana.
Ferskjubátum dreift í kring. Bringurnar brúnaðar á báðum hliðum við góðan
hita og ferskjurnar einnig (snúið einu sinni) og síðan er víni eða vatni
hellt á pönnuna. Þegar sýður er hitinn lækkaður og látið malla þar til
kjúklingabringurnar eru rétt steiktar í gegn (best að stinga hnífsoddi í
eina þeirra til að athuga það) og ferskjurnar meyrar. Þá er hunanginu hrært
saman við (óþarft ef notað er vatn), berjunum stráð yfir, sósan smökkuð til
með pipar og salti og soðið í 1-2 mínútur í viðbót. Borið fram, t.d. með
grænu salati og tómötum.