Kjúklingabringur með Delfí hvítlauksmauki (fyrir fjóra)

4 kjúklingabringur, skornar þversum í tvennt
1 uppskrift Delfí hvítlauksmauk sjá neðar
2 tómatar, skornir í sneiðar
200 g rifinn granítostur
1 dl hvítlauksolía
nýmulinn svartur pipar
2 dl fersk basilíka, söxuð smátt

Delfí hvítlauksmauk

3-4 hvítlauksrif, söxuð smátt (mega vera fleiri)
1/2 búnt steinselja, smátt söxuð
1 dl mjólk eða matreiðslurjómi
nýmulinn svartur pipar
sjávarsalt
Setjið allt innihald ískál og hrærið því vel saman.

Hitið ofninn í 180°C. Skerið djúpa rauf í þykkari hluta bringuhelmingsins og fyllið með 1-2 msk af Delfí hvítlauksmauki. Raðið bitunum í eldfast mót og setjið tómatsneið á hvern þeirra. Dreypið hvítlauksolíu yfir bringurnar, piprið og stráið að lokum rifnum osti yfir kjúklinginn. Bakið í ofni í 20 mínútur. Ferskri basilíku stráð yfir og borið fram með bökuðum kertöflum.