Kjúklingabringur Orvieto

4 kjúklingabringur
1 heill hvítlaukur
100 gr steinlausar svartar ólívur
2 fennel
2 stórar bökunarkartöflur
50 g kjúklingalifur

Hvítlaukurinn er tekinn í sundur og soðinn þar til hann er mjúkur.
Kartöflurnar eru skornar í stóra teninga, soðnar og síðan látnar kólna.
Skerið fennel gróft og setjið á álpappír. Kryddið með salti, pipar og ólívuolíu.
Bakið í 20 mín. í 200 gráðu heitum ofni.

Því næst er kjúklingalifrin steikt í olíu, kartöflunum ,ólífum, hvítlauk og
fennel er bætt saman við og þetta steikt saman í 5 mín. Að lokum eru
kjúklingabringurnar steiktar og settar á diska. Bætið meðlætinu ofaná.

Uppskrift: Jonathan Ricketts