Kjúklingabringur og kúskús
Hráefni:
2 kjúklingabringur
2 sneiðar beikon
1 msk. olía
1 tsk. hunang
1 tsk. sinnep
1 tsk. kjúklingakrydd
salt og pipar eftir smekk
Sósa með kjúklingi (hráefni):
½ laukur, smátt saxaður
1 msk. olía
½ paprika, smátt söxuð
200 g sveppir, saxaðir í sneiðar
1 dl vatn
2 dl matreiðslurjómi
1 tsk. kjúklingakraftur eða grænmetiskraftur
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
1 tsk. blandað grænmetiskrydd (herbes de Provence)
50 grömm rjómaostur
pipar og salt eftir smekk
Aðferð:
Skerið þrjár rákir í hverja kjúklingabringu og setjið beikon þar ofan í.
Léttsteikið bringurnar á pönnu við vægan hita í 2-3 mínútur. Kryddið með salti
og pipar. Hrærið sinnep og hunang saman og penslið bringurnar með því. Setjið
bringurnar í ofnfast fat að lokinni steikingu og látið þær bakast í ofni í 20
mínútur við 180 gráður. Á meðan búið þið til sósuna.
Grænmetissósa með kjúklingabringum:
Léttsteikið lauk og grænmeti þar til laukurinn er mjúkur. Bætið þá tilheyrandi
kryddum saman við, ásamt vatni og rjóma og látið sósuna sjóða við vægan hita í
7-10 mínútur, bætið þá rjómaosti saman við og þykkið jafnvel sósuna með
maísmjöli.
Kúskús með grænmeti (hráefni):
1 rauðlaukur, smátt saxaður
½ paprika
1 gulrót, skorin í þunnar sneiðar
2 dl vatn
1 tsk. jurtakraftur
½ tsk. karrí
½ tsk. paprika
¼ tsk. hvítur pipar
1 dl kúskús
Aðferð:
Léttsteikið lauk og grænmeti þar til laukurinn er mjúkur. Bætið þá vatni og
kryddum saman við og sjóðið saman í nokkrar mínútur. Bætið kúskús saman við og
takið pottinn af hellunni. Látið bíða í 10 mínútur og rétturinn er tilbúinn.
Berið fram með kjúklingi og grænmetissósu.
