Kjúklingabringur - Mole el Carlo

fyrir 5
Mole sósan er með súkkulaði og chilli og verður því mjög bragðmikil með reykjarkeimi. Hægt er að stjórna styrknum með því að fjarlægja kjarna og steina úr jalapenos og chilli.

5 vænar og skinnlausar kjúklingabringur
50g hveiti, blandað með salti og pipar
50g smjör
1 hvítvínsglas (má sleppa)
3 stk lárviðarlauf
1 msk kjúklingakraftur

Sósa
1 laukur fínsaxaður
3 hvítlauksrif fínsöxuð
30g rúsínur
70g möndlur, muldar
2 stk niðursoðnir tómatar
2 msk sesamfræ, ristuð
6 skt tortillu snakk (nachos), mulið
½ tsk anísfræ
½ tsk kanill
½ tsk negull
½ tsk koriander mulinn
1 stk rauður chilli, saxaður
1 stk Jalapeno chilli, saxaður
30g dökkt súkkulaði

Bringurnar eru skornar eftir endilöngu í 4 bita. Bitunum er síðan velt uppúr hveitikryddblöndunni. Bræðið helminginn af smjörinu í stórri pönnu og brúnið kjúklinginn. Bætið síðan við 3 bollum af vatni, hvítvíninu og lárviðarlaufunum. Látið malla við lágan hita í 20 mínútur, eða þangað til að kjúklingurinn er eldaður. Takið bitana uppúr soðinu og setjið til hliðar. Á meðan, er sósan búin til. Bræðið restina af smjörinu í potti. Látið lauk og hvítlauk útí og látið krauma þangað til að laukurinn er meyr. Síðan er öllu nema súkkulaðinu bætt í pottinn og látið krauma í 10 mín. Allt sett í blandarann og múlað með soðinu af kjúklingnum. Gott er að bæta vökvanum úti í smá skömmtum. Sósan á að vera þykkari kantinum. Blandan er sett aftur útí pottinn á vægum hita og súkkulaðinu er hrært varlega saman við. Borið fram með hrísgrjónum, sýrðum rjóma, lime bátum og fersku koriander.