Kjúklingabitar í hvítvínssósu
fyrir 4
1 msk smjör
1 msk ólífuolía
100 g beikon, skorið í bita
1 1/2 stk laukur, skorinn til helminga og sneiddur
2 stk hvítlauksrif, söxuð
4 stk kjúklingaleggir
4 stk kjúklingalæri
150 g kastaníusveppir, skornir til helminga
1 stk kjúklingakraftsteningur
500 ml hvítvín
250 ml matreiðslurjómi
salt og nýmalaður pipar
handfylli söxuð steinselja
Bræðið smjör í potti og bætið ólífuolíunni saman við. Steikið beikonið og bætið
lauk og hvítlauk saman við og steikið þar til laukarnir eru mjúkir í gegn.
Setjið laukana og beikonið í skál. Brúnið kjúklingabitana í sama pott og bætið
sveppunum, kjúklingakraftinum, hvítvíninu, lauknum og beikoninu út í og látið
malla í 25-30 mínútur. Fjarlagið kjúklingabitana úr pottinum og bætið rjómanum
út í, kryddið með salti og pipar og látið sósuna þykkna örlítið. Bætið
kjúklingabitunum út i og stráið steinseljunni yfir.