Kjúklinga-souvlaki

4 kjúklingabringur, beinlausar en með ham
1 sítróna
3 msk hvítlauksolía
nokkrar timjangreinar
1/2 tsk þurrkuð minta eða oregano
nýmalaður pipar
salt

Kjúklingabringurnar skornar í bita, um 3 cm á kant. Sítrónan kreist í skál
og hvítlauksolíunni hrært vel saman við. Blöðin strokin eða tínd af
timjangreinunum og sett út í ásamt mintu eða oregano, pipar og salti.
Kjúklingabitunum velt upp úr leginum og þeir látnir liggja í a.m.k.
hálftíma; hrært einu sinni eða tvisvar. Útigrill eða grillið í ofninum
hitað. Kjúklingabitarnir þræddir á teina, 4-5 á hvern, og grillaðir við
góðan hita í 4-5 mínútur á hvorri hlið; snúið einu sinni. Bornir fram t.d.
með steiktum kartöflubátum og salati, eða með kúskús blönduðu með söxuðu
grænmeti.