300 g kjúklingakjöt
1 dl rauðar nýrnabaunir
1 dl hvítar baunir
1 ananas (ferskur)

1 búnt salat eftir smekk
1/2 búnt steinselja
1 rauðlaukur
1/2 dl hvítvínsedik
Leggið baunirnar í bleyti í kalt vatn í a.m.k 12 klst.
(ath. hvora tegund fyrir sig.)
Hellið vatninu af baununum og sjóðið þær skv. leiðbeiningum á pakka (hvora
tegund fyrir sig). Bætið örlitlu salti út í vatnið. Kælið.
Skerið soðið eða grillað kjúklinga- eða kalkúnakjötið í strimla. Afhýðið ananasinn og skerð í teninga.Saltið og piprið hvítvínsedikið. Saxið rauðlaukinn smátt og hellið edikblðndunni yfir.
Skolið salatið og rífið niður í skál ásamt
kjúklingastrimlum og ananas. Blandið kældum baununum saman við. Hellið
rauðlauksedikinu og grófsaxaðri steinselju yfir.
Berið fram með grófu brauði.