4 stk beinlausar og skinnlausar bringur eða
læri(lærin eru bragðmeiri) tekið í helminga
2 msk smjör
2 msk hveiti
1 meðalstór rauður laukur, saxaður
1 bakki af ferskum sveppum, teknir í 4 hluta hver
1 ½ bolli kjúklingasoð (kjúklingakraftur og vatn t.d.)
2 msk gróft sinnep
½ bolli sýrður rjómi
3 msk söxuð steinselja
2 bollar soðnar eggjanúðlur
Bræðið smjörið á pönnu. Veltið kjúklingnum upp
úr hveiti og steikið, snúið honum reglulega þangað fallegur litur er kominn á
bitana.
Hrærið lauknum, sveppunum og því sem eftir er af hveitinu útí. Lækkið hitann og
látið malla á meðalhita þangað til laukurinn er byrjaður að brúnast eða í um 5
mínútur.
Sláið saman í skál kjúklingasoðinu og
sinnepinu. Hellið blöndunni á pönnuna og hitið upp að suðu. Lækkið hitan og
eldið í 5 mínútur. Bætið þá við sýrða rjómanum og steinseljunni og látið malla í
2 mínútur í viðbót. Kryddið með salti og pipar.
Berið fram með eggjanúðlunum.
