Kasjúkjúklingur frá Laos
100 g kasjúhnetur
500 g kjúklingabringur, beinlausar og hamflettar
2 msk olía, t.d. jarðhnetuolía
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
2-8 þurrkuð chilialdin, fræhreinsuð að mestu, mulin eða söxuð
1 msk ostrusósa
1 msk sojasósa
1/2 msk plómusósa (má sleppa)
100 ml vatn
1-2 vorlaukar, saxaðir
Panna hituð, hneturnar settar á hana og
ristaðar þar til þær eru rétt farnar
að taka lit; hrært oft á meðan. Hellt á disk og látnar kólna.
Kjúklingabringurnar skornar í 1 cm þykkar sneiðar þvert yfir og hver sneið
síðan í tvennt. 1 msk af olíu hitað á wokpönnu eða þykkbotna pönnu og
laukur, hvítlaukur og chili sett á hana og veltisteikt í 1-2 mínútur án þess
að brenna. Hellt á diskinn með hnetunum. Afgangurinn af olíunni hitaður í
wokpönnunni og kjúklingurinn settur á hana og veltisteiktur við háan hita
þar til hann hefur allur tekið lit. Ostrusósa, sojasósa, plómusósa og vatn
hrært saman og hellt yfir og síðan er hnetunum og lauknum hrært saman við,
hitinn lækkaður og látið sjóða í 3-4 mínútur. Smakkað til, vorlauknum hrært
saman við og borið fram með soðnum hrísgrjónum.