8-10 kjúklingaleggir
5 dl paprikuflögur, muldar
rifinn parmessan ostur
pipar
salt
4 msk pestósósa
2 msk olía
Hitið ofninn í 200°C. Myljið flögurnar smátt og blandið parmessan ostinum saman
við. Þerrið kjúklingaleggina og kryddið þá með salti og pipar.
Blandið saman olíunni og pestósósunni og veltið leggjunum upp úr
blöndunni.Veltið þeim síðan upp úr muldu flögunum og þrýstið þeim vel að
leggjunum.
Raðið þeim í eldfast fat og dreifið afganginum af flögunum yfir.Setjið í ofninn
og bakið í 35 mínútur eða þar til leggirnir eru gegnsteiktir.
Gott er að bera leggina fram með fersku salati og steiktum kartöflubátum.
