Kjúklingakarríréttur frá Súmötru (Kari Deli)

800 g kjúklingaleggir
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
2 cm biti af engifer, saxaður
2-3 þurrkuð rauð chilialdin
1 tsk kóríanderfræ, steytt
1 tsk kummin, steytt
1/4 tsk túrmerik (eða 1/2 tsk milt karríduft)
nýmalaður pipar
1 dós (450-500 ml) kókosmjólk
250 ml vatn
1 tsk kanell
4-6 kardimommur
2 stjörnuanísgeirar (má sleppa)
3 negulnaglar, eða malaður negull á hnífsoddi
salt
300 g kartöflur, afhýddar og skornar í bita
1 msk tamarindmauk, hrært út í svolitlu heitu vatni

Kjúklingurinn tekinn af beinunum, e.t.v. hamflettur, og síðan skorinn í
bita. Laukur, hvítlaukur, engifer, chili, kóríander, kummin og túrmerik sett
í matvinnsluvél eða blandara og maukað (þetta má auðvitað líka gera í
mortéli). Hellt á pönnu eða í víðan pott ásamt kókosmjólk og vatni, hitað að
suðu og látið malla við hægan hita undir loki í um 10 mínútur. Þá er öllu
hinu nema tamarindmaukinu bætt út og látið malla í um 25 mínútur. Hrært öðru
hverju. Tamarindmaukinu hrært saman við og látið malla án loks í 10 mínútur
í viðbót, eða þar til sósan hefur þykknað nokkuð. Borið fram með soðnum
hrísgrjónum.