Karabískir kjúklingagrillpinnar (fyrir fjóra)
500 g kjúklingabringur, bein og skinnlausar
börkur af 1 límónu (lime), fínt rifin
30 ml (2 msk) límónusafi
15 ml (1 msk) romm eða sherry
15 ml (1 msk) ljós hrásykur
5 ml (1 tsk) malaður kanill
2 mangóaldin, flysjuð og skorin í teninga
hrísgrjón og salat sem meðlæti
Skerið kjúklingabringurnar í stóra bita og setjið þær í skál með límónuberki og -safa, rommi/sherry, sykri og kanil. Hrærið vel saman svo að allt hjúpist og látið marinerast í 1 klukkustund. Geymið kryddlöginn en þræðið kjúklingabitana á fjóra grillpinna og hafið mangóbitana á milli. Eldið pinnana undir heitu grilli eða á útigrilli í 8-10 mínútur. Snúið öðru hverju og penslið með afgangi af kryddleginum, þar til kjúklingabitarnir eru orðnir meyrir og gullinbrúnir. Berið fram með hrísgrjónum og salati.