Japanskur kjúklingaréttur


4 bringur, skinnlausar.

1/2 bolli olía
1/4 bolli Balsamic edik
2 msk sykur
2 msk soyasósa
Þetta er soðið saman í ca. 1 mín, kælt og hrært í annað slagið meðan kólnar (ef ekki hrært skilur sósan sig!).

1 poki núðlur (instant súpunúðlur) - ekki krydd.
möndluflögur (3-4 matskeiðar) eða eftir smekk
sesamfræ (1-2 matskeiðar) eða eftir smekk
Þetta er ristað á þurri pönnu, núðlurnar brotnar í smáa bita og þær ristaðar fyrst því þær taka lengstan tíma, síðan möndlurnar og fræin. Kælt. (ath. núðlurnar eiga að vera stökkar).

Salatpoki (blandað t.d.)
tómatar(t.d. sherry tómatar)
1 mangó
1 lítill rauðlaukur.

Kjúklingabringur skornar í ræmur og snöggsteiktar í olíu. Sweet hot chillisósu hellt yfir og látið malla í smá stund.

Allt sett í fat eða mót. Fyrst salatið, síðan núðlugumsið ofan á svo balsamic blandan yfir og að síðustu er heitum kjúklingabringuræmunum dreift yfir.

Borðað með hvítlauksbrauði.

Ath. gott er að geyma eitthvað af sósunni og bera fram með réttinum. Sósan er líka góð með brauðinu.