Ítalíukjúklingur með skinku og osti


4 Kjúlla bringur, úrbeinaðar
4 þunnar skinkusneiðar
4 þunnar ostasneiðar
Fersk salvía, 4 blöð
Smjör eða matarolía til steikingar
Salt
Pipar
1 dl kjúklingasoð (vatn + teningur)


Takið skinn af kjúklingabringunum.
Ristið með hnífi ofan í hverja bringu og búið til einskonar vasa.
Setjið eina ostsneið, eina skinkusneið og eitt ferskt salvíublað í hvern vasa.
Þrýstið bringunni saman aftur og látið bíða í 30-40 mínútur.
Hitið smjör/olíu á pönnu og steikið bringurnar vel í þrjár-fjórar mínútur á hvorri hlið.
Kryddið með salti og pipar.
Hellið kjúklingasoðinu yfir réttinn og hitið augnablik.
Soðin hrísgrjón og tómatasneiðar með sýrðum rjóma eru tilvalin með þessum rétti.