Hrísgrjónakjúklingur frá Myanmar
8-12 kjúklingaleggir, eftir stærð
salt
1 tsk túrmerik
4 msk olía (t.d. maísolía eða jarðhnetuolía)
8 heilar kardimommur (má sleppa)
1 msk garam masala eða karríduft
1 msk paprikuduft
1 tsk kummin, steytt
1/2 tsk kanell
250 g hrísgrjón, langkorna
700 ml vatn
4 msk steiktur laukur
2 msk mangóchutney
200 ml sýrður rjómi eða rjómi
250 g frosnar strengjabaunir
Kjúklingaleggirnir kryddaðir með 1 tsk af salti
og 1/2 tsk af túrmeriki.
Olían hituð á stórri, þykkbotna pönnu (helst húðaðri) eða í potti og
kjúklingaleggirnir brúnaðir við góðan hita. Á meðan er kardimommum, garam
masala, papriku, kummini, kanel og 1/2 tsk af salti blandað saman í skál.
Kjúklingaleggirnir teknir af pönnunni og settir á disk en kryddinu stráð á
pönnuna í staðinn og hrært í um 1 mínútu. Hrísgrjónunum dreift á pönnuna og
hrært í 1 mínútu í viðbót. Vatninu hellt yfir og hitað að suðu. Steiktum
lauk og mangóchutney hrært saman við ásamt rjómanum, kjúklingaleggirnir
settir aftur á pönnuna og strengjabaunum dreift yfir. Lok lagt yfir og látið
malla við hægan hita í 30-35 mínútur. Ekki hræra í grjónunum en ef pannan er
ekki húðuð getur verið vissara að hrista hana öðru hverju. Ef mikill vökvi
er eftir þegar rétturinn er að verða tilbúinn má taka lokið af og hækka
hitann.