Grillaður kjúklingur með grænmeti, pasta og mozzarella

Hér er einföld uppskrift að hollum og ljúffengum pastarétti með grilluðum kjúklingabringum,
grænmeti og mozzarella-osti fyrir fjóra:


4 skinn- og beinlausar kjúklingabringur.
225 grömm pasta, til dæmis penne, skrúfur eða slaufur.
225 grömm mozzarella-ostur, skorinn í bita.
1 rauðlaukur, saxaður.
1 haus af rómversku salati (bindisalati), skorinn niður.
6 kirsuberjatómatar, skornir í bita.


Grillið kjúklingabringurnar við háan hita í um 6 til 8 mínútur á hvorri hlið. Takið svo af grillinu, látið kólna og skerið svo niður í bita. Sjóðið pastað á meðan í léttsöltuðu vatni. Látið það svo kólna eilítið á meðan þið blandið kálinu, lauknum, ostinum og tómötunum saman í stóra skál. Bætið svo pastanu og kjúklingabitunum að endingu út í. Til þess að fá meira bragð af kjúklingabitunum er gott að marínera þá áður en þeir eru settir á grillið eða krydda þá með að eigin vali. Hins vegar er ekki mælt með neinni sósu út á þennan rétt, enda á hann að vera léttur og ferskur.