Grillaður kjúklingur
fyrir 4-5

1 kjúklingur 1,5- 2 kg

2 saxaðir laukar
50 g smjör
2 bollar tómatsósa
1/2 bolli vatn
4 msk cider edik eða sítrónusafi
1 tsk salt
1/2 tsk pipar

Látið laukinn krauma í smjörinu þar til hann verður mjúkur. Blandið saman öllum efnunum í kryddlöginn og látið krauma við lágan hita í 5 mín.
Þvoið og þerrið kjúklinginn og skerið hann í tvennt. Penslið hann með kryddleginum og leggið helmingana á grillbakka. Setjið á grillið yfir meðalhita í 1 klukkustund og penslið af og til.
Berið kryddlöginn sem eftir er fram sem sósu með kjötinu. Ef afgangur verður af sósunni er upplagt að eiga hann í frysti.

Tilbrigði við sósu:

Sterk sósa:
Sleppið tómatsósunni og paprikudufti og notið í staðinn 2 bolla af chilisósu og 2 msk af chilipipar

Sinnepssósa
Sleppið ediki eða sítrónusafa og notið í staðinn 6 msk af sinnepi og 1/4 tsk cayennepipar.

Sósa frá New Orleans
Sleppið vanti og notið 1/2 bolla af soya, 2 msk af worchestersósu og 2 tsk af hot peppersósu í staðinn.