Grillaður kjúklingur með Pica de Gullo salsasósu
4 kjúklingabringur
klípa af sellerísalti og cayennepipar, blandað saman
30 ml (2 msk) grænmetisolía
kornflögur til meðlætis
salsasósa
275 g vatnsmelóna
175 g kantalópmelóna
1 lítill rauðlaukur
1-2 græn chili
30 ml (2 msk) límónusafi (limsafi)
60 ml (4 msk) ferskur kóríander, saxaður
klífa af salti
Hitið grillið á meðalhita. Ristið djúpt í kjúklingabringurnar til að stytta
eldunartíma.
Kryddið bringurnar með sellerísalti og cayennepipar. Penslið með olíu og grillið
í um 15 mínútur.
Að laga salsasósu:
Fjarlægið börkinn og eins mikið af fræjum úr melónunum og hægt er, sneiðið
kjötið fínt og setjið í skál. Brytjið laukinn fínt, kljúfið chili piparinn eftir
endilöngu (fræjum hent, þar sem sterkasta bragðið kemur af þeim) og brytjið
hann. Fara þarf varlega þegar skorinn pipar er handfjatlaður. Blandið saman við
melónurnar.
Bætið límónusafa og kóríandaer saman við og kryddið með salti. Hellið
salsasósunni í litla skál.
Raðið grillaða kjúklingnum á fat og berið fram með salsasósu og kornflögum (nachos)