Gljáður fylltur kjúklingur (Fyrir fjóra)

1 stk stór kjúklingur

Fylling:
1 stk laukur
5 stk hvítlauksgeirar
3 stk gulrætur
1 stk sellerírót
1/2 búnt sellerístönglar
2 stk fennel
3 msk smjör
1/ búnt timjan
2 msk sérríedik
salt og pipar

Afhýðið lauk, hvítlauk, gulrætur og sellerírót og skerið í litla teninga ásamt sellerístönglum og fennel. Mýkið allt grænmetið í smjöri á pönnu með timjani. Bætið sérríediki á pönnuna og kryddið með salti og pipar. Fyllið kjúklinginn með grænmetisblöndunni.

Hunangsgljái:
4 msk hunang
3 msk smjör
5 msk limesafi
3 msk svört sesamfræ
2 msk kóríanderfræ, möluð
salt og hvítur pipar

Hitið hunang í potti og hrærið saman við stofuheitt smjör. Blandið saman við limesafa, sesamfræ og kóríanderfræ. Penslið gljáanum á kjúklinginn og kryddið með salti og hvítum pipar. Setjið kjúklinginn á ofngrind með bakka undir og eldið við 120°C þar til kjarnhiti nær 70°C, eða í um 2 klst. Penslið gljáanum reglulega á kjúklinginn á meðan á steikingu stendur. Berið fram með fersku salati.