Fylltar kjúklingabringur með pesto hrísgrjónum
6 stórar kjúklingabringur með skinni
1 bolli soðin hrísgrjón
½ tsk salt
2 msk sýrður rjómi
¼ tsk pipar
2 msk olíuolía
1 bolli ferskt basilkum
1 msk sterk sósa (tabasco)
2 hvítlauksgeirar saxaðir
½ bolli Valhnetur
1 msk bráðið smjör
¾ bolli rifinn parmesan ostur
Losið skinnið frá bringunum til að mynda vasa fyrir fyllinguna. Kryddið með
salti og pipar. Blandið saman í matarvinnsluvél basilkum, hvítlauk og valhnetur.
Blandið saman í stórri skál parmesan osti, hrísgrjónum, sýrðum rjóma, ólífuolíu,
sterkri sósu og basilkum blöndunni. Setjið u.þ.b. 1/3 bolla af blöndunni undir
skinnið á hverri bringu*
Raðið í eldfast mót, penslið með bræddu smjörinu og steikið í 165°heitum ofni í
u.þ.b. klukkutíma eða þangað til bringurnar eru tilbúnar (fer eftir stærð)
*Ef skinnið losnar, pressið það yfir fyllinguna og festið með tannstönglum
