Fylltar kjúklingabringur

Skerið paprikur í fjóra hluta, penslið þær með ólífuolíu og grillið í ofni á 230 gráðum þangað til þær byrja að sviðna vel. Látið kólna í skál undir plastfilmu.
Skerið kjúklingabringurnar í tvennt á þykktina og bankið með buffhamri. Fyllið með papriku, geitaosti og spínati. Rúllið upp og festið saman með sláturgarni eða tannstönglum. Bakið bringurnar við 190 gráður þar til þær eru fallega gylltar. Sósan er búin til með því að sjóða saman berjavín og soð af kjúklingabringunum, salt og pipar eftir smekk og smá sítrónusafa. (Ef þið eigið ekkert berjavín, prófið þá trönuberjasafa eða góða sultu). Þykkið með því að hrista saman kalt vatn og maísenamjöl og hella út