Félagskjúklingur
 

1 Kjúklingur (ég nota yfirleitt slatta af bitum)
2-3 msk smjör
4 dl vatn
1 grænt epli
1 laukur
2 1/2 tsk karrý
1 tsk season all
1/2 tsk salt
1 dl vatn
1 tsk kjúklingakraftur
1 dós sýrður rjómi 18%
1-2 tsk mango chutney
3 tsk sósujafnari ljós

Brúnið kjúklinginn í 1/2 af smjörinu, stráið season og örlítið af salt,
setið í pott ásamt 4 dl af vatni - látið sjóða. (ég krydda bitana set þá í pott slurka smjöri og sýð).  Saxið lauk og epli, látið krauma í 1-2 min á pönnunni í afganginum af smjörinu og stráið karrý yfir.  Hellið vatni ásamt krafti og sýrðum rjóma og mango chutney, látið sjóða við vægan hita 3-5 min (ég hef það töluvert lengur eða meðan kjúklingurinn er að verða tilbúin). Hellið sósunni út í pottinn og jafnið með sósujafnara bragðbætið að vild. (ég geri yfirleitt öfugt þ.e. bæti bitunum við út í gumsið og ég er farin að tvöfalda sósuuppskriftina)