Eyjavængir með ídýfu

8 stk vængir
1 dós niðursoðinn grænn chilli, vökvinn tekinn af
¼ bolli saxaður laukur
¼ bolli rúsínur
1 msk. Appelsínumarmelaði
1 msk. Púðursykur
1 msk. Sítrónusafi
¼ tsk allrahanda krydd
1 stór banani skorinn niður í bita
1 msk. Hvítlauksolía

Takið fremsta partinn af vængjunum , hann notast ekki. Takið svo vængina í tvennt á liðnum, þannig að hver vængur verði 2 hlutar.

Hitið hvítlauksolíuna á pönnu. Eldið vængina í 18 – 20 mínútur eða þangað til þeir eru orðnir fallega brúnir á öllum hliðum.
Kryddið vængina aðeins með salti og pipar og berið fram með ídýfunni.

Ídýfan:
Blandið saman í mixer chilli, lauk, rúsínum, apríkósumarmelaðinu, púðursykrinum, sítrónusafanum, Allrahanda kryddinu og bananum.